Um Melrakkasetrið

Melrakkasetur Íslands er fræðasetur sem helgað er íslenska melrakkanum sem er af tegundinni Vulpes lagopex og er eina upprunalega landspendýrið á Íslandi.Melrakkasetur Íslands ehf. var stofnað í Súðavík 15. september 2007 og meðal stofnfélaga eru einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög. þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á íslensku tófunni og öllu sem henni viðkemur, svo og náttúrulífs- og sögutengdri ferðaþjónustu.Langtímamarkmið með stofnun setursins eru þau að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum í fortíð og nútíð og að setja upp sýningu fyrir ferðamenn þar sem mun verða á boðstólnum fræðandi efni í máli og myndum um refi í náttúrunni, hérlendis sem erlendis, refarækt og refaveiðar. Ennfremur að stuðla að og taka þátt í rannsóknum á líffræði tegundarinnar og þróun sjálfbærrar náttúrulífs-ferðamennsku.Hvar erum við?Melrakkasetur Íslands er til húsa í Eyrardalsbænum í Súðavík, mitt á milli gömlu og nýju byggðarinnar.

Sjá nánar á korti neðst á síðunniPóstfang: Melrakkasetur Íslands efhEyrardal – 420 SúðavíkÍsland, IS-420Símanúmer:+ 354 456 4922