Þakkarorð

Heimasíðan og öflun efnis á hana er fjármagnað með styrktarfé úr sjóði Menningarráðs Vestfjarða og Þjóðhátíðarsjóði

Fleiri styrkveitingar sem Melrakkasetrinu hafa borist:
  • Fjárlaganefnd Alþingis fyrir árin 2008, 2009 og 2010
  • Styrktarsjóði Iðnaðarráðuneytisins vegna mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar
  • Styrktarsjóði EBÍ
  • Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar
  • Nýsköpunarsjóður námsmanna, Rannís 2009
  • Menningarráð Vestfjarða haust 2009
  • Þjóðhátíðarsjóður Íslands, desember 2009
  • Kristjana Samúelsdóttir, júní 2010

Margir hafa komið að undirbúningi við stofnun melrakkasetursins og lagt hönd á plóginn með einum eða öðrum hætti.

Hugmyndina að setrinu á Páll Hersteinsson sem er fremsti sérfræðingur Íslands um heimskautarefinn. Verkefnið var fyrst kynnt á ferðamálaráðstefnu að Hömrum á Ísafirði vorið 2005. Seinna var hugmyndin reifuð á ráðstefnu á vegum Northern Coastal Experience sem eru samtök strandaþjóða sem eru í uppbyggingu menningar- og náttúrutengdrar ferðamennsku. Á báðum þessum ráðstefnum hlaut hugmyndin góðan hljómgrunn og gaf tilefni til að ætla að hægt væri að hrinda verkefninu í framkvæmd.

Fjöldi fólks á þakkir skildar fyrir góðar undirtektir, ágætar hugmyndir og auðsýndan stuðning í garð Melrakkasetursins. Erfitt er að telja upp einstaka aðila en þó verð ég að nefna nokkra:
Guðrún Friðriksdóttir frá Súðavík, sem benti okkur á húsið í Eyrardal sem hentugan vettvang Melrakkasetursins. Ómar Már Jónsson, Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps sem unnið hefur ómetanlega að undirbúningi og líklegt að verkefnið hefði gengið mun hægar hefði hans ekki notið við. Magnús Alfreðsson smiður hefur séð um uppbyggingu hússins og teiknistofan Argos hannað endurgerðina. Barði Ingibjartsson, Dagbjört Hjaltadóttir og Vilborg Arnarsdóttir hafa komið með ýmsar hugmyndir og búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem komu sér vel í undirbúningsvinnunni. Arna Lára hjá AtVest aðstoðaði við áætlanagerð og stofnfundinn og gaf mörg góð ráð. Jón Jónsson á Ströndum sýndi verkefninu mikinn áhuga og miðlaði af sínum djúpa reynslubrunni. Ásbjörn Björgvinsson hjá Hvalamiðstöðinni á Húsavík og Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir hjá Selasetri Íslands veittu upplýsingar um stofnun og starfsemi slíkra fyrirtækja. Þorleifur Eiríksson hjá Náttúrustofu Vestfjarða og Rögnvaldur Ólafsson hjá Fræðasetrum Háskóla Íslands komu með afar gagnlega sýn á rannsóknarþátt setursins. Þorleifur Ágústsson, Peter Weiss, Aðalsteinn Óskarsson, Halldór Halldórsson og Grímur Atlason komu með ýmsar gagnlegar hugmyndir varðandi rekstur setursins.
Einstaklega fallegar ljósmyndir Daníels Bergmann af tófum á Íslandi hafa birst í tengslum við auglýsingar og umfjöllun um melrakkasetrið, honum eru hér færðar þakkir fyrir.

Ýmsir aðrir hafa sýnt verkefninu áhuga og athygli og ber að þakka þessu fólki allan þann stuðning sem okkur hefur verið sýndur - fólkinu fyrir vestan, aðilum í ferðaþjónustu, vísindamönnum frá Háskólanum í Tromsø og Norsk Polarinstitutt í Noregi.


Vefumsjón