11.03.2010 - 11:20
Óskalisti Melrakkaseturs
Við hjá Melrakkasetrinu erum nú á fullu að undirbúa sýninguna handa ykkur. Nú hjálpumst við öll að til að sýningin geti orðið eins og best verður á kosið.
Við höfum fengið margar góðar ábendingar og hugmyndir frá allskonar fólki auk eigin hugmynda sem sumar hafa tekið nokkrum breytingum og þróast eins og gengur.
Meira
Við höfum fengið margar góðar ábendingar og hugmyndir frá allskonar fólki auk eigin hugmynda sem sumar hafa tekið nokkrum breytingum og þróast eins og gengur.
Til dæmis langar okkur að fá góða upplesara til að lesa inn fróðleik um refina og veiðisögurnar svo hægt sé að „hlusta á sýninguna" meðan gengið er um sýningarsalinn. Draumurinn er því að geta eignast spilara með heyrnartólum til að lána gestunum okkar.
Meira





