01.03.2010 - 11:41

Námskeið

Melrakkasetrið heldur námskeið, í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða, þar sem fjallað er um melrakkann sem auðlind í ferðaþjónustu. Sagt er stuttlega frá líffræði og útbreiðslu tegundarinnar og sérstöðu hennar sem eina landspendýrsins sem finnst svo norðarlega sem raun ber vitni (ekki eiginlega hægt að tala um hvítabjörn sem landspendýr). Aðlögun að fimbulkulda norðursins er einna áhugaverðasti hæfileiki tófunnar en hún hefur einn þéttasta og best einangrandi feld dýraríkisins. 
Sagt er frá refum í náttúru Íslands og hvernig hægt er að finna þá, fylgjast með þeim og ljósmynda þá án þess að valda óþarfa truflun eða skaða. Ferðaþjónar og leiðsögumenn sem sækja námskeiðið fá viðurkenningarskjal sem vottar að þeir sýni áhuga á á ábyrgri náttúruferðamennsku og vilja til að skoða villt dýralíf á sjálfbæran hátt. 
Umsjón hefur Ester Rut Unnsteinsdóttir 
01.03.2010 - 11:28

Ljósmynda og kvikmyndaverkefni

Ítalskir ljósmyndarar í Hornvík sumarið 2009
Ítalskir ljósmyndarar í Hornvík sumarið 2009
« 1 af 9 »
Melrakkasetrið býður fram aðstoð sína fyrir ljósmyndara og kvikmyndatökufólk sem vill ná góðu myndefni af melrakkanum. Við vinnum með vönum veiðimönnum sem kunna þá list að lokka til sín tófur en í þessu tilfelli er skotið með myndavélum og því hægt að "selja aðgang" að sama dýrinu margsinnis. 
Mest er unnið á Friðlandi Hornstranda enda mestur þéttleiki refa þar og frábært landslag sem gegnir mikilvægu hlutverki sem bakgrunnur mynda. Mestu skiptir þó að þar eru dýrin spök og "dagvirk" sem er mikilvægt fyrir ljósmyndara sem þurfa jú dagsbirtuna til að ná sem bestum myndum.  
01.03.2010 - 11:24

Steingildrur

Forfeður okkar höfðu veitt loðdýr öldum saman, áður en þeir fluttust til Íslands fyrir 1100 árum. Það er því ekki að undra, að þeir skyldu veiða tófur hér frá upphafi. Refskinn voru líka verðmætur gjaldmiðill á þjóðveldistímanum og lengur. Algengast í upphafi byggðar mun hafa verið að veiða refir í steingildrur á veturna. Notkun steingildra var almenn fyrstu aldirnar en virðist hafa lagst niður í upphafi 19. aldar. Vitað er að gildrur þessar hafa varðveist víðast hvar en fáir sem ganga fram á þær vita hvaða mannvirki er um að ræða. Staðsetning sumra er þekkt en annara þarf að leita að eftir vísbendingum frá gömlum grenjaskyttum eða öðrum staðkunnugum.

Steingildrur eru fornminjar um merkan menningararf. Slíkir gripir og mannvirki vekja hvarvetna athygli og áhuga og er hægt að nýta í menningartengdri ferðaþjónustu sem er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og víðar. Upplýsingar um valdar gildrur gætu nýst sveitastjórnum, ferðaþjónustuaðilum og öðrum hagsmunaaðilum á þeim svæðum þar sem gildrur finnast.
Verkefnið er unnið í samvinnu við Dr. Ragnar Edvardsson, fornminjavörð Vestfjarða 

 

01.03.2010 - 11:16

Gamlir refir

Finnbogi Pétursson, einn af gömlu refaveiðimönnunum
Finnbogi Pétursson, einn af gömlu refaveiðimönnunum

Verkefnið gengur út á að safna upplýsingum um refaveiðar og grenjavinnslu á Vestfjörðum og víðar fyrr á tímum. Þessar upplýsingar eru í munnlegri geymd aldraðra grenjaskytta sem unnu verkin áratugum saman. Refaveiðar eru líklega með elstu atvinnugreinum íslendinga og því er hér um dýrmætar sagnfræðilegar heimildir að ræða sem mikilvægt er að safna og skrá áður en það verður um seinan.

Ekki er mikið um skráðar upplýsingar um starfsemi grenjaskytta, aðferðir og búnað við refaveiðar fyrr á tímum. Hugmyndin er að leita í sagnaarfinn með því að safna slíkum upplýsingum frá mönnum sem höfðu atvinnu af grenjavinnslu og refaveiðum á síðastliðinni öld. Margir þessara manna eru háaldraðir og því er mikilvægt að afla heimilda um störf þeirra á meðan þeirra nýtur enn við.

Efnið sem safnast verður sett fram á aðgengilegan og fræðandi hátt á sýningu Melrakkaseturs Íslands í gamla Eyrardalsbænum í Súðavík. 
Umsjón með söfnun gagna er Valdimar Gíslason sagnfræðingur að Mýrum í Dýrafirði, æðabóndi og refaskytta
Umsjón með uppsetningu á sýningu er Auður Alfífa Ketilsdóttir, nemandi í Hagnýtri menningarmiðlun við HÍ og landeigandi í Reykjafirði 


 

Fyrri síða1
2
Næsta síða
Síða 2 af 2
Vefumsjón