Samfélagsmál
Melrakkasetrið sinnir sínu nærsamfélagi og býður nemendum í Grunnskóla Súðavíkur upp á fræðslu um melrakka, mýs og fleiri spendýr í íslenskri náttúru. Grunnskóladeildin er einsetinn skóli fyrir 0. - 10. bekk. Nemendum er kennt í þremur námshópum: unglingastigi, miðstigi og yngsta stigi. Fimm ára nemendum er kennt með yngsta stigi í allt að 13 stundir á viku.
Forstöðumaður Melrakkasetursins kemur tvisvar í hvern námshóp í eina til tvær kennslustundir í senn, styst hjá yngsta hópnum og lengst hjá þeim elstu. Börnin læra um spendýr á Íslandi með sérstakri áherslu á hagamýs og melrakka.
Má segja að börnin séu mjög áhugasöm og mörg hver
ansi vel að sér um spendýrin okkar, margar nýjar hugmyndir hafa vaknað um efni og framsetningu á sýninguna í kjölfar þessara skólaheimsókna.
Börn og eldri borgarar Súðavíkur þurfa ekki að greiða sig inn á sýninguna og fá sérstakt aðgangskort því til staðfestingar.







