01.03.2010 - 12:19
Grasagarður
Melrakkasetur Íslands og Náttúrustofa Vestfjarða hafa gert með sér samning um verkefnið "Vestfirskir Grasagarðar". Verkefnið gengur út á að fjölga sýningarstöðum grasagarðs sem þegar hefur verið stofnaður í Bolungarvík, meðal annars að setja upp einn slíkan við Melrakkasetrið en við höfum hug á að hafa íslenskar plöntur til sýningar á lóðinni umhverfis setrið.
Grasagarðurinn mun væntanlega vekja áhuga ferðamanna sem koma á svæðið og verða vitundarvakning um íslenska flóru.
Umsjón hefur Kristjana Einarsdóttir hjá NAVE
Grasagarðurinn mun væntanlega vekja áhuga ferðamanna sem koma á svæðið og verða vitundarvakning um íslenska flóru.
Umsjón hefur Kristjana Einarsdóttir hjá NAVE







