Refaveiðimenn á Vesturlandi
Kristján Guðmundsson frá Hítarnesi, fæddur 2. Febrúar 1894.
Hann var lengi grenjaskytta víða á Mýrum og á Arnavatnsheiði, skaut einnig seli og fugla. Kristján var stundum kallaður "Byssu Stjáni".
Á millistríðsárunum seldi hann mikið að refaskinnum, skaut fullorðnu dýrin við greni en tók yrðlingana og ól þá heima hjá sér fram á haustið. Í þá daga voru allar fínu frúrnar í Reykjavík með refaskinn um hálsinn.
Hér eru nokkrar af Veiðiminningum Kristjáns í bundnu máli:
Fékk ég tófu fram við sjó
Flestar dóu í hrauni og skó
Yfir snjó og auðan mó
Undan dróu sumar þó.
Upp til fjalla elti ég ref
Um urð og hjalla stutt með skref
Kletta, stalla, klif og nef
Í kófi mjalla hrapað hef.
Oft með hjörðum illa sæmd
Ímynd gerð að broti
Féll að jörðu, dauðadæmd
Drifin hörðu skoti.
Refur bráðum dauða dó
Datt á lágan mosa
Kúlan grá til dauða dró
Dýrið bláa, sofðu í ró
Tvær um sel
Feigur sá hvað fyrir lá
Flýja má í sjáinn
Kúlan gráa þýtur þá
Þarna lá hann dáinn
Oft að vanga byssu bar
Í blautu þangi hér og þar
Seli að fanga víða var
Vestra ganga sögurnar
Tekið saman fyrir Melrakkasetrið af Sigrúnu Unnsteinsdóttur





