Söfnun fyrir vefmyndavél
Okkur hjá Melrakkasetrinu hefur lengi dreymt um að setja upp vefmyndavél við greni að sumarlagi. Þannig gætum við öll fylgst með refafjölskyldu í náttúrulegu umhverfi á skjánum heima. Við gætum séð hvernig yrðlingarnir líta út þegar þeir eru ungir og hvernig þeir breytast, þroskast og vaxa úr grasi. Hægt væri að sjá samskipti yrðlinganna innbyrðis og við foreldra sína.
Að vetrarlagi myndum við setja myndavélina á stað þar sem sett hefur verið út æti og fylgst með dýrunum sem heimsækja staðinn. Þá getum við séð hvernig feldur dýranna breytist yfir veturinn og hvaða dýr halda saman á þessum tíma þegar ekki er um tímgun að ræða.
Fyrir utan hversu fróðlegt það yrði að fylgjast með dýrunum á þennan hátt, er það hrein skemmtun að fylgjast með dýralífinu og allir geta átt kost á að skoða dýrin heiman frá sér.
Vefmyndavélin er dýr, bæði í innkaupum og rekstri en við höfum stofnað sérstakan söfnunarreikning til að byrja strax að afla fjár til verkefnisins.
Ef þið viljið, getið þið hjálpað okkur að safna fyrir myndavélinni - öll framlög eru skráð á sérstakan lista sem mun birtast á síðunni.
Reikningsnúmer er: 1128 - 26 - 250394 (Jönusjóður)
Kennitala Melrakkasetursins er: 660907-1060
texti: vefmyndavél + nafn greiðanda
Hjálpumst að við að koma melrökkunum á skjáinn