Sýningar á Rebbakaffi

Akrílmyndir Maríu - litríkar og fallegar
Akrílmyndir Maríu - litríkar og fallegar
Á veggjum Rebbakaffis er pláss fyrir litlar sýningar. Sýningarplássið er ókeypis en listamaður setur verkin sín upp sjálfur og sér um að taka þau niður. Ef verkin eru til sölu er langbest að listamenn sjái sjálfir um viðskiptin. Hægt er að panta pláss fyrir sýningar í Melrakkasetrinu í síma 456 4922.

í júní 2012 stendur yfir sýning á akrílmyndum eftir Maríu hjá Art West. Myndirnar eru litríkar og fjörugar og viðfangsefnið er konan og þjóðlegur búningur. 

Í ágúst 2011 sýndum við vatnslitamyndir Guðrúnar Ingibjartsdóttur. Þemað var náttúran, dýrin og fjöllin og svo auðvitað bláber.

Frímerkjasýning Helga Gunnarssonar í Melrakkasetri, sumarið 2010

Helgi Gunnarsson, rannsóknarlögreglumaður, er fæddur í Reykjavík en er búsettur í Hafnarfirði. Hann er af Arnardalsætt, en á einnig rætur að rekja til Múlasveitar í Barðastrandarsýslu. Hann hefur haft áhuga á tófunni frá barnsaldri, meðal annars vegna þess að melrakkinn er jú eina upprunalega spendýrið á Íslandi. Hann hefur safnað frímerkjum, póstkortum og fleiru með myndum af melrökkum frá hinum ýmsu heimshornum. Helgi er frímerkjasafnari af lífi og sál og hefur verið þrjú ár að safna þessum tófufrímerkjum, skrifaði bréf til ýmissa aðila um allan heim og fékk þá til að senda sér préf og póst.

Helgi lánaði Melrakkasetrinu frímerkjasafnið sitt til að hafa til sýnis í sumar. Hann vill gjarnan fá senda hluti og merki til að stækka safnið.

Það er mikill fengur fyrir okkur að fá að sýna þetta merka safn sem Helgi hefur sett svo skemmtilega saman í máli og myndum.

Vefumsjón