Samkeppni - fjöldinn allur af tillögum barst

Vestfirskt grjót með refasporum
Vestfirskt grjót með refasporum
« 1 af 3 »
Melrakkasetrið þakkar frábærar undirtektir og þátttöku í samkeppni um gjafavörur !


Þemað var íslenski melrakkinn, tófan, lágfóta... sumar sem vetur. 

Við erum alveg gapandi hissa á því hvað fólk er skapandi og frumlegt og hvað hægt er að búa til fallega muni úr einföldum efnum.

Allar innsendar tillögur voru skoðaðar með opnum huga og valdi dómnefnd þær tillögur sem gætu átt heima á vörulista fyrirtækisins. Sumar þeirra voru fullunnar en aðrar á hugmyndastigi og nokkrar einhvers staðar mitt á milli.

Þrjár af tillögunum fengu sérstaka athygli hjá dómnefnd og urðu fyrir valinu sem fullunnar vörur sem hægt væri að setja í framleiðslu og sölu á setrinu. Fleiri tillögur verða einnig valdar til áframhaldandi þróunar því þær þóttu efnilegar á vörulista setursins.

Þær þrjár sem dómnefnd valdi voru:

  • Fallegar gjafaöskjur með vestfirsku grjóti með refasporum sem greipt eru í með sandblástri. Höfundur er Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, myndhöggvari í Grindavík.
  • Hálsmen úr leðuról með refahaus úr silfri. Höfundur er Finnur Þórðarsson, skartgripahönnuður á Akranesi.
  • Kross-saums sett með mynd af íslenskum ref í vetrarbúningi. Höfundur Berglind Sveinsdóttir, Hnífsdal.

Þrátt fyrir að ekki hafi allar tillögurnar hlotið hljómgrunn dómnefndar, hvetjum við til áframhaldandi sköpunar og framleiðslu á handverki og nytjahlutum því það er aldrei til nóg af fallegum og hagnýtum munum. Við munum fylgjast með viðkomandi og jafnvel panta fullunnar útfærslur á ýmsu sem okkur þótti áhugavert að skoða betur. 

 

Vefumsjón