Frímerkjasýning á Rebbakaffi

Frímerkjasýning Helga Gunnarssonar í Melrakkasetri

Helgi Gunnarsson, rannsóknarlögreglumaður, er fæddur í Reykjavík en er búsettur í Hafnarfirði. Hann er af Arnardalsætt, en á einnig rætur að rekja til Múlasveitar í Barðastrandarsýslu. Hann hefur haft áhuga á tófunni frá barnsaldri, meðal annars vegna þess að melrakkinn er jú eina upprunalega spendýrið á Íslandi. Hann hefur safnað frímerkjum, póstkortum og fleiru með myndum af melrökkum frá hinum ýmsu heimshornum. Helgi er frímerkjasafnari af lífi og sál og hefur verið þrjú ár að safna þessum tófufrímerkjum, skrifaði bréf til ýmissa aðila um allan heim og fékk þá til að senda sér préf og póst.

Helgi lánaði Melrakkasetrinu frímerkjasafnið sitt til að hafa til sýnis í sumar. Hann vill gjarnan fá senda hluti og merki til að stækka safnið.

Það er mikill fengur fyrir okkur að fá að sýna þetta merka safn sem Helgi hefur sett svo skemmtilega saman í máli og myndum.
 
Vefumsjón