Mikki og melrakkarnir & Gaggað í grjótinu 2012
Mikki refur er rauðrefur frá Hálsaskógi í Noregi. Hann er frægur og fallegur og veit vel af því. Þegar Mikki kemur í heimsókn í Melrakkasetrið hittir hann fyrir vestfirskar tófur, þau Móra og Mjallhvíti. Þau spjalla saman og kynnast lífi hvors annars en rauðrefir og tófur geta lært margt hvort af öðru. Það gengur ýmislegt á hjá Mikka og melrökkunum og gaman að fylgjast með þeim eina dagsstund.
Leikstjóri er Elfar Logi Hannesson. Handrit, leikmynd og brúður eru eftir Ástu Þórisdóttur og Lilju á Drangsnesi. Menningarráð Vestfjarða veitti styrk til verkefnisins.
Leiksýningin Mikki og melrakkarnir verður frumsýnd á afmæli Melrakkasetursins sem haldið verður hátíðlegt laugardaginn 16. júní. Mikki og melrakkarnir verða síðan á loftinu um helgar í sumar - nánar auglýst síðar.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Gaggað í Grjótinu - einleikur
Leikurinn er sérstaklega saminn fyrir Melrakkasetrið og þar er sögð saga refsins sem hefur búið hér lengur en elstu menn muna.
Í Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað...
Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.
Gaggað í grjótinu var frumsýnt í Melrakkasetrinu í Súðavík miðvikudagskvöldið 16. júní 2010
Miðasala á allar sýningarnar er í Melrakkasetrinu í Súðavík og í síma: 456 4922.







