04.08.2010 - 16:49

Félagsgjöld og haustferð Spendýrafræðafélagsins


Annir sumarsins dynja enn að fullum þunga á okkur stjórnarmeðlimum en engu að síður hefur okkur tekist að koma okkar fyrstu verkum í gegn.

Nú hefur félagið hlotið kennitölu og eigin bankareikning. Á stofnfundi félagsins þann 31. maí náðist einróma samþykki þess að félagsgjöld þessa árs verði 2000 kr. Það gjald verður endurskoðað á næsta aðalfundi.

Hvetjum við ykkur öll til að gerast fullgildir meðlimir og greiða félagsgjöld þessa árs, með því móti stuðlið þið að vexti félagsins og gerið því kleift að ná settum markmiðum.


Félagsgjöld að upphæð 2000 kr. er hægt að leggja inn á bankareikning: 0192 - 26 - 4706 (kennitala: 470610-0850), vinsamlegast sendið kvittun fyrir greiðslu á ran@na.is


Auðvitað þurfum við ekki alltaf að hittast til þess eins að ræða málin á alvarlegu nótunum, því komu upp hugmyndir á stofnfundinum að við skildum stefna á skemmtilega haustferð á komandi hausti. Vonumst við til þess að haustferðir Spendýrafræðafélagsins verði sem næst árlegar. Þetta fyrsta starfsár félagsins ætlum við í stjórninni að efna til haustferðar á slóðir refsins í tilefni að nýopnuðu Melrakkasetri Esterar á Súðavík. Eru auðvitað allir velkomnir í þessa ferð.

Stefnan er sett á fyrstu helgina í september og verður „tjaldað" til einnar nætur, þ.e. frá laugardeginum 4. sept. til sunnudagsins 5. sept. Við höfum útvegað gistingu í tvíbýli í sumarbyggðinni á Súðavík. Verðið á manninn fyrir gistinguna með upp á búin rúm er c.a. 2800 kr. Við stefnum á að leigja rútu frá Reykjavík til Súðavíkur, þeir sem koma annarstaðar að af landinu geta hitt okkur í Hreðavatnsskála í Borgarfirði og tekið rútuna þaðan, eða fyrr á leiðinni ef það hentar. Rútan mun leggja af stað um 8:00 um morguninn frá Reykjavík, staðsetning verður kynnt síðar. Verðtilboð á rútuleigu mun berast á næstu dögum.

Við hyggjumst gera okkur glaðan dag á Súðavík, skoða okkur um á Melrakkasetrinu og snæða saman kvöldverð á laugardeginum. Á sunnudeginum höfum við tækifæri til að skoða okkur um í gönguferð um náttúruna eða með öðrum hætti, enda allar tillögur vel þegnar. Rútan mun svo flytja okkur aftur til Reykjavíkur um 16:00 leitið á sunnudeginum.

Vonumst við til að sem flestir skrái sig í félagið og að auðvitað sem flestir skrái sig í haustferðina. Það væri vel þegið ef þið gætuð tilkynnt sem fyrst hvort þið hyggist taka þátt í ferðinni svo við getum gengið frá skipulagningu á gistingum og rútuferðinni.


Fyrir hönd stjórnar,

Edda Elísabet Magnúsdóttir

04.08.2010 - 13:41

Reglugerð nýstofnaðs Spendýrafræðafélags Íslands

Hér má sjá lög Spendýrafræðafélags Íslands sem tekin voru í gildi á stofnfundi félagsins þann 31. maí 2010

-Lög Spendýrafræðafélags Íslands-
1. gr.
Félagið heitir „Spendýrafræðafélag Íslands" sem á ensku útleggst „The Icelandic Society of Mammalogy".


2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er á vinnustað ritara.


3. gr.
Markmið félagsins er að mynda vettvang skoðanaskipta og fræðslu er snýr að íslenskum spendýrum. Félagið vill efla íslenskar spendýrarannsóknir og hvetja til samstarfs milli íslenskra spendýrafræðinga sem og við erlenda sérfræðinga.


4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda úti heimasíðu og vera með virkan póstlista fyrir umræður, fræðslu og tilkynningar tengdar spendýrum. Félagið mun einnig hvetja til eða standa fyrir þingum, málstofum, fyrirlestrum og námskeiðum.


5. gr.
Stofnfélagar eru þeir sem skráðir verða í stofnfélagaskrá á stofnfundi.


6.gr.
Félagið er opið öllum þeim sem vinna með eða hafa áhuga á íslenskum spendýrum og rannsóknum þeim tengdum.


7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð þremur félagsmönnum og einum til vara. Stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi til eins árs í senn. Formaðurinn er kosinn sérstaklega en stjórnin skiptir með sér verkum ritara og gjaldkera. Firmaritun og dagleg umsjón félagsins annast formaður stjórnar. Stjórnin er ólaunuð.


8. gr.
Aðalfund skal halda fyrir 31. mars á hverju ári. Til hans skal boða með viku fyrirvara hið minnsta. Endurskoðaðir ársreikningar félagsins skulu liggja frammi á aðalfundi og bornir upp til samþykktar. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skráðir félagsmenn sem greitt hafa árgjald. Fundurinn er öllum opinn. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum. Ef fjöldi atkvæða er jafn gildir atkvæði formanns tvöfalt. Á aðalfundi félagsins er lögð fram skýrsla stjórnar. Í þeirri skýrslu er gerð grein fyrir störfum félagsins á starfsárinu, lagðir fram reikningar, og komið með tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru.


9. gr.
Árgjald er ákveðið á aðalfundi og skal það innheimt 4 vikum fyrir aðalfund. Árgjald endurskoðast á hverjum aðalfundi.


10. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í starfsemi tengda félaginu. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni.


11. gr.
Ákvörðun um slit félags er tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess til Hins Íslenska Líffræðifélags.


Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins og öðlast nú þegar gildi

Dagsetning: 30. April 2010


Edda Elísabet Magnúsdóttir
10.05.2010 - 10:11

Spendýrafræðafélag Íslands stofnað

Þann 30. apríl 2010 var Spendýrafræðafélag Íslands formlega stofnað með undirskrift 20 stofnfélaga.
Á fundinum voru reglugerðir félagsins ræddar og að lokum samþykktar með einróma samþykki. Jafnframt var kosið í fyrstu stjórn félagsins sem skipuð er af þremur félagsmönnum til stjórnarsetu í eitt ár, að þessu sinni voru kosnar til stjórnarsetu:

Formaður: Edda Elísabet Magnúsdóttir - Doktorsnemi í sjávarspendýrafræði (hvalir)
Gjaldkeri:
Rán Þórarinsdóttir - Mastersnemi í fuglafræði og starfsmaður Náttúrustofu Austurlands (hreindýr)
Ritari: Sandra Magdalena Granquist - Doktorsnemi í sjávarspendýrafræði (selir) og starfsmaður Selaseturs Íslands

Með stofnun Spendýrafræðafélags Íslands vonumst við til þess að byggja upp sterkt tenglsanet milli starfandi aðila á sviðum spendýrarannsókna, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Einnig mun félagið vinna að miðlun þekkingar á þessu sviði til almennings, en öllum, sem áhuga hafa, er heimilt að skrá sig í félagið.

Þar sem félagið tekur fyrir nokkuð sérhæfðan hluta líffræðinnar mun vera lögð áhersla á samstarf við stærri félög á sviði náttúrufræða. Spendýrafræðin er þó í sjálfu sér ákaflega víðtæk og kemur við á öllum sviðum líffræðinnar, því var orðið nauðsynlegt að skapa vetvang fyrir rannsóknafólk og aðra áhugamenn á þessu sviði til að bera saman bækur sínar. Þannig vonumst við eftir að félagið muni greiða leið upplýsinga og þekkingar á sviðum spendýrafræða og -rannsókna og hvetja til lifandi og virks rannsóknarumhverfis.

Stjórnin
23.04.2010 - 08:37

Stofnfundur spendýrafélags Íslands

Stofnfundur Spendýrafélags Íslands verður haldinn í stofu 128 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, föstudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 17.00.

Vonumst til að sjá sem allra flesta á fundinum. 

Undirbúningsstjórnin



27.04.2009 - 16:28

Áhugafélag stofnað

Félag áhugamanna um spendýrarannsóknir
Félag áhugamanna um spendýrarannsóknir
Á kosningadaginn, þann 25. apríl 2009 hittist hópur fólks á Hvanneyri í Borgarfirði, þar á meðal fulltrúi Melrakkaseturs Íslands.

Tilefnið var að safna saman öllum þeim sem áhuga hafa á og stunda rannsóknir á íslenskum spendýrum. Hugmyndin kom frá Söndru Granquist og á hún heiður skilinn fyrir að halda því til streitu að koma mannskapnum saman en það var ekki auðvelt að finna dag sem allir gætu komist, búið að taka allan veturinn og nú var komið að því, hvort sem væru kosningar eða ekki..

Nema hvað, þarna var samankominn fjölbreyttur hópur manna og kvenna sem eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á spendýrarannsóknum á Íslandi. Eins og menn vita er spendýrafánan ansi fábreytt en þrátt fyrir það mátti sjá á kynningum að það eru margvíslegar rannsóknir sem eru eða hafa verið stundaðar á spendýrum hérlendis þó margt sé ennþá óunnið.

Á fundinum var kosin undirbúningsstjórn, skipuð þeim Söndru Granquist, Eddu E. Magnúsdóttur og Rán Þórarinsdóttur.

Fundarmenn kynntu verkefni sín sem fjölluðu m.a. um seli, hvali, hreindýr, minka, kanínur, refi, hagamýs, kýr, kindur, hesta o.fl.

Þetta er líklega fyrsta spendýrafélagið sem verður stofnað á Íslandi og er hugmyndin að úr verði e.k. mammal society og spennandi að sjá hvernig framhaldið verður. Þarna er búið að brúa bilið milli þeirra sem vinna með húsdýr og villta dýrastofna og sjávar og landspendýr - ef hægt er að segja að um bil hafi verið að ræða.

Við hjá Melrakkasetrinu erum stolt af því að taka þátt í stofnun þessa félags enda má segja að melrakkinn sé einkennisdýr Íslands, alla vega þegar talað er um spendýr á landi. Við munum halda utan um heimasíðu félagsins hér á þessari síðu til að byrja með enda er www.melrakki.is  mjög svo viðeigandi vefslóð fyrir spendýrasamfélagið.
 
Vefumsjón