Gestabók
jos þorgrimsstöðum
7 tófum færra í vatnsnesfjalli, var að koma af greni og þar var borðað lambakjöt. góða nótt....jos
Árni Másson
Það er gott að einhver tekur upp hanskan fyrir rebba og býr honum höfuðból á sinu ummráðasvæði,eg hef altaf verið hrifinn af þessu dýri og þetta dýr er fyrsta landnámsdyr á Islandi.
Jóhannes Kristjánsson Brekku.
Össur Torfa Brekka á Ingjaldssandi er í Önundarfirði, Þar bjó Guðmundur refaskytta nær allan sinn búskap.
Össur Torfason
Ég las það á heimasíðu Refasetursins að í Herráðstofuni var
haldin Herráðsfundur , þá varð mér að orði ::
Upp á háum ,Herráðs veggjum,
hanga munu, án saka menn.
Einig þeir ,sem stálu eggjum,
slungnir refir, þar birtast senn. Ö.T. 14/09.2010
Áslaug varaformaður Zontaklúbbsins Fjörgynjar á Ísafirði
Kærar þakkir fyrir góðan mat, þjónustu og aðstöðu í Eyrardalsbænum/Melrakkasetrinu í gærkvöldi :)
Haraldur R. Ingvason
Til hamingju með daginn :o)
Kv.
Haraldur
Össur Torfason
Góða kvöldið. Ég hef kanski nefnt það við ikkur áður ,að Guðmundur Einarsson kemur úr
Borgarfirði siðri og flist til Dýrafjarðar. Eins og hækt er að lesa í æfiminningum hans,
Nú brosir nóttin , skrásett af Theodóri Gunnlaugssyni. Að í Dýrafirði bjó hann allan sinn
búskap, og síðustu árin á Brekku á Ingjaldssandi. Þó að Sandsmenn sæktu verslun til
Flateyrar var Ingjalssandu í Mýrarhreppi í Dýrafirði.
Með bestu kveðjum Ö.T.
Rán Sturlaugsdóttir
Sæl
Þetta er frábært framtak hjá ykkur og flott síða.
Hlakka til að kíkja á sýninguna hjá ykkur.
Kveðja,
Rán
Bergur H. Bergsson
Flott síða og afar áhugaverð.
Kíki við í sumar!
Kv, Bergur
Guðjón Smári Valgeirsson
Var að uppgötva síðuna ykkar. Skemmtilega varðveitt svona kannski hálfleyndarmál. Finnst flott hjá ykkur að opna Melrakkasetur. Þið eruð að sanna það sem sagt var í gamla daga: Ekki sitja með hendur í skauti – farið af stað og gerið hlutina, það virkar!
Reyni að koma því inn í mín plön í sumar að koma í heimsókn. Hugmynd okkar hjóna að þvælast aðeins um kjálkann. Nokkur ár síðan við höfum gert það.
Að lokum: Til hamingju með framtakið og bestu óskir um velgengni í framtíðinni.
Sigurður Hrafn Tryggvason
Þetta er frábært starf sem unnið er af ykkur til fræðslu,söfnunar og varveislu á sögunni,faðir minn var refaskytta á Langanesi og þar í kring,þess vegna vekur þetta áhuga minn.
Haraldur A. Haraldsson
Þetta er fróðleg síða og myndirnar af "rebba" eru meiriháttar flottar.
takk fyrir.
Har.
Helga Dóra Kristjánsdóttir
Sæl Ester, takk fyrir að fræða okkur á þingi SVK í Heydal. Það verður gaman að fylgjast með vinnu ykkar, við uppbyggingu Melrakkasetursins. Afi minn var refaskytta allan sinn starfsaldur og fylgdist vel með atferli rebba.
Kveðja, Helga Dóra
Anna Guðm.
Góðan daginn. Ég var sömuleiðis á þingi S.V.K og ákvað í kjölfar fyrirlestur þíns Ester, að kíkja á síðuna ykkar.
Kvitta hér með fyrir innlitið og þakka enn og aftur fyrir mjög svo fræðandi og skemmtilegann fyrirlestur. Gangi þér og ykkur vel með verkefnið.
Kveðja, Anna Guðmundsdóttir.
Ágústa Guðmundsdóttir
Komdu sæl Ester.
Ég var á þingi SVK og hlustaði og horfði á fyrirlestur þinn, sem mér fannst mjög áhugaverður og skemmtilegur.
Takk fyrir þann fróðleik sem þú miðlaðir okkur.
Ég þekki fullorðna konu, fósturfaðir hennar var refaskytta. Ég skal athuga hvort hún lumi ekki á einhverjum sögum um skyttuferðir hans og þá sendi ég þér þær sögur með hennar leyfi.
Bestu kveðjur.
Ágústa
Dagbjört Hjaltadóttir
Aldeilis flottar myndir af Eyrardal.
Glæsileg heimasíða og frábært framtak. Til hamingju með þetta
Marianne Jensdóttir
Frábær heimasíða! Alveg hreint til fyrirmyndar!
Til hamingju með glæsilega heimasíðu sem er vel upp sett og frábær gluggi á mikilvægar og gagnlegar upplýsingar um Melrakkann í fortíð og nútíð.
Anna Scheving
Flott síða hjá ykkur og fallegar skepnur.
Dagbjört
Við getum verið ánægð með vefsíðuna. Þetta verður svakaflott þegar allt verður komið á sinn stað :-)
Kv. Dagga







