01.03.2010 - 09:42

Styrkur frá VaxVest

Á dögunum var undirritaður samningur milli Melrakkasetursins og Vaxtarsamnings Vestfjarða. Styrkurinn rennur til klasaverkefnis sem kallað er „Villt dýr að féþúfu" og er samstarfsverkefni milli Melrakkaseturs, Náttúrustofu Vestfjarða, Rannsókna- og fræðaseturs HÍ á Vestfjörðum, Vesturferða og Borea Adventures.
Um er að ræða samstarf í vöruþróun á náttúrulífstengdri ferðaþjónustu í kringum villt dýralif á Vestfjörðum. Á Vestfjörðum eru óvenju fjölbreyttir möguleikar fyrir náttúrulífstengda ferðaþjónustu og mikill mannauður, þekking og reynsla sem mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu hennar. Refurinn hefur ekki verið tekjulind fyrir þjóðina í næstum hundrað ár heldur kostað sveitafélög milljónir á ári í langan tíma. Hugmyndin er að snúa þeirri stefnu við og gera Vestfirðingum kleift að hafa tekjur af tófunni á sjálfbæran hátt enda má kalla refinn einkennisdýr Vestfjarða....
Meira
26.02.2010 - 16:52

Falleg mynd

Melrakkasetrið. Ljósmynd: Þórður K. Sigurðsson
Melrakkasetrið. Ljósmynd: Þórður K. Sigurðsson
Melrakkasetrinu barst á dögunum að gjöf ljósmynd af Eyrardalsbænum, sem mun hýsa sýninguna okkar og kaffihúsið frá og með næsta vori. Gjöfinni fylgdu réttindi til að selja eða nýta á hvern þann hátt sem gæti komið setrinu til góða.
Ljósmyndarinn heitir Þórður Kristinn Sigurðsson og við þökkum honum kærlega fyrir myndina sem okkur þykir býsna góð. Hægt er að skoða fleiri myndir Þórðar af glæsilegu umhverfi Melrakkasetursins í Súðavík á ljósmyndasíðu Kristalmyndar.

fleiri ljósmyndasíður er að finna á tenglasafninu okkar 
Vefumsjón