Ljósmyndarinn okkar á gosstöðvunum
Uri Golman, ljósmyndari okkar, kom til landsins fyrir
nokkrum dögum, til að taka ljósmyndir af refum á Vestfjörðum. Tobias Mennle, sem
vann mikið með okkur í fyrra við að kvikmynda lífshætti refanna fyrir þýska
náttúrulífsmynd, kom líka til að halda áfram þar sem frá var horfið í fyrra. Stóð
til að Uri og Tobias myndu starfa saman í þessari lotu, ásamt líffræðingnum Frank Drygala, og safna upplýsingum og
myndefni um pörun og fleira sem gerist í lífi refanna á vorin.
Uri komst þó
ekki til Vestfjarða í þetta skiptið því eins og alþjóð veit fór að gjósa undir
Eyjafjöllum og hafa þeir báðir dvalið við gosstöðvarnar í vikunni. Við fengum
þessar frábæru myndir frá Uri í sárabætur en til stóð að hann ynni sitt fyrsta refa-ljósmyndaverkefni
hérlendis. Þess ber að geta að Uri var að ljúka ljósmyndaverkefni í Indíum þar
sem hann vann mest með tígrisdýr. Hægt er að skoða myndir og blogg á heimasíðu
Uri: www.urigolman.com







