Tónleikaferð Myrru Rósar og The Anatomy of Frank
Aðgangseyrir er 1500 kr.
The Anatomy of Frank:
Þetta er í fyrsta skipti sem Kyle Woolard kemur til Íslands en hann er ungur tónlistarmaður frá Charlottesville, Virginíu Í Bandaríkjunum. Hann er aðal söngvari sveitarinnar The Anatomy of Frank en leggur nú af stað í Evróputúr þar sem hann mun flytja efni sveitarinnar eins síns liðs. Hann hefur nýlega lokið við slíkt ferðalag í Norður Ameríku við frábærar undirtektir áheyrenda þar sem honum hefur verið hampað í hástert fyrir flutning sinn á efni sveitarinnar. Hann hefur orð á sér fyrir að hrífa alla með sér með hressandi gítarlínum, fallegri rödd og frábærri sviðsframkomu.
Myrra Rós:
Myrra Rós er söngvaskáld staðsett í Reykjavík. Hún gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu er ber nafnið Kveldúlfur og hefur platan fengið frábæra dóma hvar svo sem hún hefur komið við
. Myrra Rós hefur verið iðin við tónleikahald innanlands sem utan og hefur verið rómuð fyrir fallega rödd og einlæga sviðsframkomu sem lætur engann ósnortinn.
- Hvar?
Melrakkasetrið í Eyrardal - Hvenær?
1. september - Klukkan?
21:00 til 23:59







